04janúar

hæhæ

ég er farin að blogga á gömlu síðunni minni aftur Saklaus
http://blog.central.is/warning_sign

enjoy
04. janúar 2007 klukkan 14:10
Jóna María Magnúsdóttir
Engin athugasemd
28nóvember

James og Chris

Sæl og blessuð Brosandi 

Ég fór á James Bond á laugardagskvöldið og vá hvað mér fannst hún góð Brosandi byrjunaratriðið mangað, kallinn var lipur eins og köttur... ekki Bond heldur hinn sem hann var að elta auðvitað...

ég hafði nú ekki mikla trú á Daniel Craig, fannst hann ljótur og stífur en svo sá ég hann í hlutverkinu og vá... besti Bond sem ég hef séð, ekkert smá endalaust svalur gaur...
þessi mynd var líka öðruvísi en hinar, ekki bara endalaust mikið af tilgangslausum sprengingum og hann gerði meira að segja mistök.... Magnað

svo fannst mér ég kannast eitthvað svo við stefið í myndinni... ekki þetta gamla Bond stef heldur þetta nýja.... horfði svo á Jay Leno í gærkveldi, thats a first..... haha...... og þar sá ég einn minn uppáhalds söngvara syngja....hann Chris Cornell, dýrka röddina í honum, syngja Bond lagið... þvílík snilld.... flott lag og flottur söngvari Brosandi

hef ekkert mikið meira að segja.... var svo blown away af þessari  mynd og þessu lagi  Saklaus
28. nóvember 2006 klukkan 17:16
Jóna María Magnúsdóttir
4 athugasemdir
24nóvember

grænt

Góðan og blessaðan daginn Brosandi hvað segiði gott í dag ??

Ég er búin að vera ágætlega dugleg þessa vikuna, búin að mæta 3 sinnum í ræktina klukkan sex fyrir vinnu og í gær borðaði ég 3 ávexti og gommu af grænmeti... sem er meira en ég hef gert undanfarnar vikur Saklaus

ég verð að minnast á það að ég verð oft MJÖG pirruð í umferðinni hérna..... það væri kraftaverk ef maður myndi lenda á einum degi þar sem maður lenti ekki á eftir 100 ára gömlum kalli/kellingu sem getur varla stigið á bensíngjöfina og keyrir á svona 20... það er alveg ótrúlegt hvað maður er alltaf að lenda í þessu Öskrandi

Vinnan gengur bara ágætlega, eru frekar mikið af upplýsingum sem maður þarf að vita og heilinn á mér er ekki sá svampur sem ég vildi að hann væri... ótrúlegt gullfiskaminni í gangi alltaf hreint Skömmustulegur

en mikið ótrúlega finnst mér heimskuleg umræðan um hvort að umferðaljósakallinn eigi að vera kall eða kelling.... ég meina hefur fólk virkilega ekkert betra að gera en að vera að æsa sig yfir því...... það hljóta að vera einhver mikilvægari málefni sem er hægt að æsa sig yfir eða þarf að ræða.... ég meina í alvöru.... rauðsokkur : GET A LIFE!!!

ég er hætt í bili Saklaus


24. nóvember 2006 klukkan 14:47
Jóna María Magnúsdóttir
Engin athugasemd
16nóvember

spurningaflóð

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þeigja yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Ég sagði já við síðusu spurningunni hjá Freyju þannig að ég verð að víst að setja þetta hérna
Brosandi
16. nóvember 2006 klukkan 17:25
Jóna María Magnúsdóttir
5 athugasemdir
07nóvember

jahá og jæja

HÆhæ Hlæjandi

ég er sko komin með vinnu... ég er orðin Þjónustufulltrúi hjá Íslandspósti Hlæjandi ég byrjaði fyrir viku síðan og er í starfsþjálfun ennþá og í einhvern tíma í viðbót... þetta er svolítið flóknara en önnur störf sem ég hef verið í og það verður mesti munur að vera sitjandi allan daginn að svara í síma og pikka í tölvu en ég held að þetta sé bara ofsalega fínt, starfsandinn mjög góður og það er allt reynt til að halda honum þannig Brosandi

Við Balli fórum á Borat um daginn og mér fannst hún alveg frábær.... ég allavega hló slatta, lokaði augunum nokkrum sinnum þegar voru frekar ógeðfelld atriði
Saklaus en þessi mynd er alveg stórkostleg og þessi leikari sem ég man aldrei hvað heitir... Sacha Cohen Baron eða eitthvað svoleiðis er orðinn einn af mínum uppáhalds gamanleikurum.... hann lék líka í Talladega nights á móti Will Ferrell og brilleraði þar......

Ég fór svo í afmæli í gær til mömmu... Til hamingju með afmælið í gær mamma
Koss Fékk þar náttúrulega alveg rosalega góðar kökur og fínerí.... svo var Viktoría litla frænka þar auðvitað og þá frétti ég að hún hefði gleypt lykil!!! og sagan frá henni var sem sagt þannig að lykillinn hefði bara labbað uppí hana og dottið oní háls og var næstum því búinn að drepa hana.... það sagði hún.... hún er alveg milljón og sjáiði bara myndina af henni þarna uppi, hvað hún er endalaust mikil dúlla Brosandi

en að öðru.... ég tek eftir því að það eru þónokkrir sem kíkja á síðuna mína en kvitta greinilega aldrei fyrir sig....
það má alveg kvitta fyrir sig hérna.... það er gestabók hérna og commentakerfi líka
Hlæjandi

Bara að minna ykkur á Koss
07. nóvember 2006 klukkan 22:59
Jóna María Magnúsdóttir
3 athugasemdir
28október

ýmislegt

vikulegt blogg sirka er það ekki fínt Brosandi ég skrapp á ball í sjallanum síðustu helgi, þar var Á móti sól að spila með Magna í fararbroddi og ég verð að segja að ég varð fyrir smá vonbrigðum, einhverra hluta vegna bjóst ég við meira rokki, lögum sem hann tók í þættinum og svona en NEI þeir tóku eiginlega bara ÁMS lög og ég ÞOLI ekki ÁMS Fýldur  ég fór með Evu og Freyju og þetta var samt ágætt sko, fórum yfir á Kaffi ak um hálffjögur og dönsuðum þar í smástund sem er alltaf jafn gaman Hlæjandi

svo á leiðinni heim þá fengum ég og Freyja þá hugmynd að ég færi með henni suður daginn eftir þar sem ég VAR atvinnulaus og hafði hvort eð er lítið að gera hér á daginn allavega, og ég gerði það Brosandi
já ég skrapp suður í tvo daga og tvær nætur, saknaði Balla míns alveg rosalega mikið, skrítið að fara svona einn að sofa á kvöldin....... Freyja var að fara að selja íbúðina sína og við skruppum í nokkrar búðir og svona og það var gaman.... versluðum alveg slatta í Ikea, keypti meira að segja eina jólagjöf og afmælisgjöf handa mömmu sem ég tel afrek fyrir mig Brosandi

svo var hringt í mig á miðvikudaginn og mér var boðin vinna hjá Íslandspósti sem þjónustufulltrúi og ég þáði það, byrja næsta þriðjudag......var reyndar búin að fá vinnu hjá 118 en átti ekkert að byrja fyrr en í nóv þannig að ég gat hætt við það enn allavega Brosandi ég er mjög sátt við að vera komin með ágætis vinnu, þetta var samt fínt að vera ekkert að gera í 2-3 vikur þar sem ég fékk ekkert sumarfrí Hlæjandi

hef ekkert meira að segja í bili
hafið það gott Brosandi

28. október 2006 klukkan 16:44
Jóna María Magnúsdóttir
1 athugasemd
20október

í alvöru...

Það má alveg kvitta fyrir komuna sko Saklaus
ég er búin að fara í nokkur í atvinnuviðtöl..... er orðin pínu þreytt á því að fara í viðtöl.... það reynir ótrúlega á, og svo er ég eitthvað svo stressuð að fara að byrja í nýrri vinnu, en það verður vonandi í lagi Brosandi

Ég setti nýja mynd í hausinn.... hún heitir Blamegame og mér finnst hún ótrúlega flott Brosandi

Ég fékk að passa Viktoríu litlu frænku í gær og mér finnst hún alveg æðisleg.... hún á sko kærasta núna sem heitir Róbert og hún segist sko ætla að giftast með honum af því að hún ætlar sko ekki að giftast ein!!!! hún er algjör snillingur dúllan Brosandi




bæ í bili
20. október 2006 klukkan 03:20
Jóna María Magnúsdóttir
2 athugasemdir
17október

nýjar myndir :) eða þú veist gamlar...

ég er búin að skella fleiri myndum í albúm Brosandi bara af sem flestum held ég.... öllum til mikillar ánægju Glottandi
17. október 2006 klukkan 02:23
Jóna María Magnúsdóttir
1 athugasemd
15október

Muse

Muse lang lang flottastir
Nýji geisladiskurinn

Muse er og verður langlanglang besta hljómsveit sem ég hef heyrt í, nýji diskurinn Black Holes and revelations er engin smá snilld
Hlæjandi
ég keypti hann strax þegar ég sá hann án þess að hafa heyrt eitt lag og ég sé sko ekki eftir því..... þeir eru snilldartónlistarmenn og lögin eru æði, manni líður bara vel innra með sér af því að hlusta Brosandi
langaði bara að segja frá því....
15. október 2006 klukkan 18:18
Jóna María Magnúsdóttir
2 athugasemdir
15október

blablabla

hæ aftur.... ég veit að það veit enginn af þessari síðu ennþá en ég er búin að setja nokkrar myndir inn Hlæjandi alveg magnaðar myndir... kíkið á þær... og látið vita af komu ykkar hérna Brosandi
15. október 2006 klukkan 05:42
Jóna María Magnúsdóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur